Afslöppun á Árskógsströnd - Tilboð

Afslöppun á Árskógsströnd

Upplifðu fullkomna slökun hjá okkur í vetur. Tilboðið gildir fyrir tvo í Bjórböðin og gistingu á Hotel Kaldi.

34.900kr (fullt verð 44.900kr)

 

Þetta er innifalið í tilboðinu.

Aðgangur að útisvæði Bjórbaðanna.

Njóttu þess að vera úti í heitum potti fyrir bjórbaðið með einstakt útsýni yfir Eyjafjörðinn. Einnig erum við með sauna tunnu sem hægt er að nýta fyrir og eftir bjórbaðið.

Við mælum með að mæta 30-60 mínútum fyrir baðtímann þinn.

 

Tími í bjórbaði.

Baðaðu þig í ungum bjór, lifandi bjór geri, humlum, baðsöltum og olíum unnin úr bjór. Hver tími er 30 mínútur og við hlið baðsins er dæla með bjór frá Bruggsmiðjunni Kalda. Eftir baðið ferð þú í slökun í 25 mínútur.

Gisting á Hotel Kaldi.

Ein nótt í tveggja manna herbergi í okkar nýja og glæsilega hóteli á Árskógssandi. Hótelið er í göngufæri frá Bjórböðunum.

Bóka tilboð

Bókanir fara fram í gegnum tölvupóstinn boka@hotelkaldi.is og við svörum við fyrsta tækifæri.